Magnesíum Sleep húðmjólk fyrir börn

Magnesíum Sleep húðmjólk fyrir börn

Verð3.390 kr
/

  • Á lager

Með Lavender og kamillu sem róar og sefar

Magnesium sleep mineral lotion junior er sérstaklega hannað fyrir börn frá 1 árs aldri. Þessi húðmjólk inniheldur magnesíum til að hjálpa þreyttum vöðvum að ná slökun, lavendel og kamillu til að róa og sefa og undirbúa líkamann fyrir svefninn. Saman hjálpa þessi efni til við að ná endurnærandi nætursvefni.

Magnesíum húðmjólkin smýgur auðveldlega inn í húðina svo áhrifin skila sér hratt og vel. Það er ætlað fyrir börn frá 1 árs aldri  og sýna klínískar rannsóknir að þetta krem bætir svefngæðin sem gerir börnum kleyft að vakna endurnærð og tilbúin í annasaman dag.

5ml (4 pumpur) af Magnesium sleep mineral lotion junior gefa 37mg af magnesíum sem líkaminn tekur upp.

Magn: 135ml

Húðmjólkin hefur verði prófuð af húðsjúkdómalæknum og hentar fyrir viðkvæma húð. Inniheldur ekki parabena, gervi-, litar- eða ilmefni.

RDS af magnesíum:

1-3 ára: 85mg

4-6 ára: 120mg

7-10 ára: 200mg

11-14 ára: 280mg

 

Til fróðleiks

Magnesíum er fjórða mikilvægasta steinefni líkamans og er gríðarlega mikilvægt fyrir heilsu okkar. Það kemur við sögu í yfir 300 mismunandi efnaskiptaferlum í líkamanum og getur magnesíumskortur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér. Þetta steinefni hefur t.a.m. áhrif á:

  • Orkumyndun (ATP í frumunum)
  • Vöðvastarfsemi
  • Taugastarfsemi
  • Myndun beina og tanna
  • Meltingu
  • Blóðflæði
  • Kalkupptöku
  • Húðheilsu

Líkami okkar þarfnast magnesíum til að ýta undir aukna orku, jafna út blóðflæði, auka kalk upptöku og hjálpa vöðvastarfsemi líkamans. Við nútíma matarframleiðslu og lifnaðarhætti hefur upptaka á magnesíum í gegnum fæðuna minnkað til muna.

 

Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótaefnum.  Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki.

Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótaefni eiga ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði.

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.


Nýlega skoðað