Afhending vöru:

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun.

Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og
tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Öllum pöntunum dreift af Íslandspósti eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

NineKids ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.

Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá NineKids ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður 

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.

Að senda með Póstinum:
Viðskiptavinur greiðir gjald samkv. verðskrá Póstsins. Verðið reiknast í sendingarmáta þegar gengið er frá greiðslu.

Hægt er að velja um það hvort varan/vörurnar séu sóttar í Póstbox, sóttar á Pósthús eða keyrðar heim að dyrum.

Verð reiknast út frá þyngd sendingar.

Að senda með DROPP:
Viðskiptavinur getur valið hvort hann sæki vöru á N1 stöð næst sér eða fá þetta heimsent samdægurs sé pantað fyrir klukkan 13.00 á daginn.


 
Að skipta og skila vöru 

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt.
Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að skila bílstólum og base-um að öryggisástæðum. Því eru kaup á þessum öryggisvörum endanleg.


Gölluð vara 

Sé varan gölluð eða kaupandi á einhvern hátt óánægður með kaupin hvetjum við kaupanda til að hafa samband við okkur svo við getum leyst málið í sameiningu.
Við greiðum allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu.

Útsölur og vöruskil:
Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Upplýsingar viðskiptavina
Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar s.s.nafn, tölvupóstfang og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar. Þessar upplýsingar eru trúnaðarmál og þær verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing 
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur. 


Upplýsingar um fyrirtækið/söluaðilann
NineKids ehf
Kennitala: 640818-0770
VSK númer: 132655
Heimilisfang: Fellsmúli 24
Tölvupóstur: ninekids@ninekids.is
Sími: 7755999

Nine Kids ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.